![]()
![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 1 umsögn(um).
Hugi sendi þessa uppskrift inn 11. nóvember 2006.
Bananabrauð
Innihald
- 250g hveiti
- 1 tsk. matarsódi
- 1/2 tsk. salt
- 110g mjúkt smjör (ekki beint úr ísskápnum)
- 110g púðursykur
- 2 egg, léttþeytt
- 500g bananar (þyngd án hýðisins)
- 1 bolli af dökkum súkkulaðibitum veldur ekki skaða
Aðferð
- Maukaðu saman með höndunum púðursykurinn og smjörið í hrærivélarskál og blandaðu svo eggjunum og banönunum saman við.
- Blanda hveitinu rólega saman við, svo matarsódanum og saltinu.
- Sett í jólakökuform, og látið bakast við 175°C í rúman klukkutíma.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Hugi
![]()
![]()
![]()
![]()
26. nóvember 2006
Afskaplega gott. Gott að vera með þeyttan rjóma eða ís með. Sérstaklega ís. Mmmmmmmh..