Hugi sendi þessa uppskrift inn 26. janúar 2010.

Skrá á Facebook Skrá á digg Skrá á Delicious

Baugfingursbomba

Frá Kristínu Jónsdóttur, Parísardömu með meiru, sem fórnaði lífi (grænmetisins) og limum fyrir uppskriftina.

Innihald

  • Einhvers konar courge/grasker, frekar lítil og ógeðslega erfitt að skræla þau
  • Kartöflur
  • Broccolí
  • Kryddvöndur
  • Seyðið af matnum frá því í gær sem verður að hafa verið jólasalat gratínerað í bjór/kjúklingaseyði með fullt af vökva eftir í mótinu sem skella skal í súpuna.
  • Negulnaglar og jafnvel fleiri krydd (ef ekki verður puttavesen inni á baði sem ruglar þig aðeins í ríminu)
  • Fingur (helst baugfingur ef til, annars vísifingur)

Aðferð

  1. Blandið öllu saman í pott.
  2. Sótthreinsið sárið eftir fingurinn.

Umsagnir

Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.

Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.