Hildur Þórðardóttir sendi þessa uppskrift inn 30. mars 2010.
Biscotti
Innihald
- 150 gr möndlur án hýðis
- 1 tsk lyftiduft
- 1/8 tsk salt
- 260 gr hveiti
- 150 gr sykur
- 3 stór egg
- fræ úr einni vanillustöng (eða vanilludropar)
- 1/2 tsk möndludropar
Aðferð
- Hitið ofninn í 180°C
- Setjið möndlur á plötu og bakið í 8-10 mín., kælið og grófhakkið
- Lækkið hitann á ofninum í 150°C
- Léttþeytið egg ásamt bragðefnum
- Hrærið saman (í hrærivél) hveiti, sykur, lyftiduft og salt
- Bætið eggjablöndunni rólega saman við og síðan hökkuðu möndlunum
- Formið deigið í lengju (35 cm langa og 8-10 cm breiða) á hveitistráðu borði
- Bakið á plötu í 30-40 mín.
- Látið kólna á grind í 10 mín.
- Setjið lengjuna á skurðarbretti og skerið í rúmlega 1 cm breiðar sneiðar
- Leggið sneiðarnar á bökunarplötu
- Bakið í 10 mín. á hvorri hlið
Best er að nota alltaf bökunarpappír
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.