Anna Soffía sendi þessa uppskrift inn 6. mars 2010.
Döðlubrauð
Innihald
- 3 dl vatn
- 150 gr döðlur
- 3.5 dl sykur
- 7 dl hveiti
- 1 tsk natron
- 1.5 tsk ger
- 1/2 tsk salt
- 1 tsk vanilludropar
- 1 msk smjör (brætt)
- 1 egg
Aðferð
- Koma upp suðu á vatni og setja brytjaðar döðlurnar saman við ásamt sykrinum
- þurrefnin, eggið og vanilludroparnir saman við og hræra í vél
- Að lokum að setja brætt smjörið útí
- Setja í tvö form og bakað í ca. 40-45 mín við 180°hita
Brauðið er gott með smjöri og osti
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.