Hugi sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.
Einfaldur Tandoori-kjúklingur
Það má ekki vanmeta uppskriftir þótt þær séu einfaldar. Þessi er svakafínn.
Innihald
- 4 kjúklingabringur
- 2 hnefar af tandoori masala-kryddblöndu
- 1 dós sýrður rjómi, 10%
Aðferð
- Skera kjúklingabringurnar í tiltölulega stóra bita
- Snöggsteikja bringurnar á pönnu
- Bæta sýrða rjómanum og kryddinu saman við, hræra vel og láta malla í hálftíma á lágum hita.
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.