Anna Soffía sendi þessa uppskrift inn 5. mars 2010.
Eplakökur í muffinsform
Innihald
- 1.5 dl sykur
- 2 egg
- 4 msk olía
- 4 msk mjólk
- 2.5 dl hveiti
- 2 tsk ger
- 1/2 tsk vanilludropar
- Litlir eplabitar
- Kanilsykur
Aðferð
- Sykur og egg þeytt mjög vel saman
- Bæta í blönduna olíu og mjólk
- Þurrefnin og vanilludropar saman við og hrært vel
- Deigið sett í muffinsform, eplabitar ofaní blönduna og kanil stráð yfir
- Bakist við 200° í miðjum ofni
Alger snilld að borða þetta heitt með þeyttum rjóma eða ís eða hvorutveggja:)
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.