Hugi sendi þessa uppskrift inn 12. apríl 2009.
Kryddbrauð
Dásamlegt gammeldags kryddbrauð eins og amma gerði. Fullkomið glóðvolgt úr ofninum með manneldisráðsmartraðarþykku lagi af smjöri og vanheilagri, þverhandarþykkri sneið af feitum osti.
Innihald
- 300g hveiti
- 300g sykur
- 300g haframjöl
- 3dl mjólk
- 2msk síróp
- 1tsk kanill
- 1tsk negull
- 1tsk engifer
- 2tsk natron
Aðferð
- Blandið þurrefnunum saman (athugið að deigið á að vera mjög stíft)
- Setjið í smurt jólakökumót
- Bakið í 180° heitum ofni í 60 mínútur
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.