![]()
![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 1 umsögn(um).
Hugi sendi þessa uppskrift inn 25. nóvember 2006.
Lambaskankar með rósmaríni
Innihald
- 4 lambaskankar
- Slurkur af ólífuolíu
- 4 hvítlauksrif, skorin í sneiðar
- 1 laukur, smátt saxaður
- 1 matskeið saxað, ferskt rósmarín
- 2dl hvítvín
- salt
- pipar
Aðferð
- Brúnaðu skankana í olíunni á heitri pönnu/potti í 10 mínútur til korter. Taktu skankana svo til hliðar
- Lækkaðu hitann á pönnunni og settu hvítlauk og lauk saman á hana. Steiktu þar til laukurinn verður glær (ekki brúna hann).
- Settu skankana aftur á pönnuna, helltu hvítvíninu yfir þá og kryddaðu með rósmaríninu, saltinu og piparnum. Lokaðu pönnunni og láttu malla á lágum hita þar til skankarnir eru mjög meyrir - í ca. tvo til tvo og hálfan tíma.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Hugi
![]()
![]()
![]()
![]()
25. nóvember 2006
Þetta eru bestu lambaskankar í heiminum