![]()
![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 1 umsögn(um).
Hugi sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.
Persneskar valhnetukökur
Innihald
- 200g fínt malaðar valhnetur (má líka nota pistasíur eða möndlur)
- 50g heilir valhnetukjarnar til skreytingar
- 4 eggjarauður
- 150g sykur
- 1msk kardimommuduft
- 1tsk matarsódi
- 1msk vatn
Aðferð
- Blandið saman möluðu valhnetunum, 3 eggjarauðum, sykri, kardimommum og matarsóda.
- Búið til kúlur á stærð við karlmannseistu (*hóst*) og raðið á bökunarplötu með smjörpappír. Hafið a.m.k. 5 sentimetra á milli kúlanna, þær þenjast vel út við bakstur.
- Blandið saman fjórðu eggjarauðunni og vatninu með gaffli. Þrýstið valhnetukjarna ofan í hverja köku og penslið svo með eggjarauðublöndunni.
- Bakið í um 20 mínútur við 180°C eða þar til kökurnar eru fallega gullnar.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Hugi
![]()
![]()
![]()
![]()
26. nóvember 2006
Eldaði þessar um daginn. Hrikalega góðar og fljótlegt að útbúa þær.