Hugi sendi þessa uppskrift inn 13. september 2008.
Pizzudeig Huga
Innihald
- 5g þurrger
- 4dl volgt vatn
- 1tsk salt
- 2msk sykur
- 50ml ólífuolía
- 500g hveiti
Aðferð
- Blandið vatni, salti, sykri, olíu og þurrger saman og leyfið að standa í 10mín.
- Hrærið hveitið saman við til að fá þykkt deig. Hnoðið deigið þar til það er vel þétt í sér.
- Látið deigið rísa í klukkutíma.
- Hnoðið deigið fyrir notkun, fletjið út í pizzustærð og látið hefa sig í 10 mínútur.
Það getur verið gott að baka deigið í 5 mínútur áður en sósa og álegg er sett á það.
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.