Hugi sendi þessa uppskrift inn 16. september 2008.
Pönnukökur
Góðar, gamaldags íslenskar pönnukökur.
Innihald
- 2 egg
- 50g bráðið smjör
- 50g sykur
- 200g hveiti
- 1/2ltr mjólk
- 1/2 tsk vanilludropar
Aðferð
- Blandið öllum blautu efnunum saman og hrærið hveitið svo saman við.
- Best er að láta deigið standa í ca. 30 mínútur áður en það er notað, svo kökurnar verði þéttari í sér.
Það er mjög gott að sleppa sykrinum og búa til ósætar pönnukökur. Þá má t.d. setja ost, svartan pipar og salt yfir kökuna meðan hún er enn á pönnunni og brjóta hana svo saman til helminga. Gott með sultu.
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.