![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 1 umsögn(um).
Logi Helgu sendi þessa uppskrift inn 23. desember 2006.
Ris a la mande
Möndlugrautur fyrir 4, tilvalinn um jólin.
Innihald
- 85 gr. grautargrjón( eða hrísgrjón)
- 0,5 dl. vatn
- 1,25 l. mjólk
- 1 matskeið sykur
- 3 tsk. vanillusykur
- 50 gr. hakkaðar möndlur
- 2 dl. þeyttur rjómi
Aðferð
- Setjið grjónin í pott og bleytið í þeim með vatninu
- Sjóðið og bætið mjólk útí eftir þörfum
- Kælið grautinn
- Blandið hökkuðu möndlunum, sykri, vanillusykri og þeytta rjómanum út í (smakkist til)
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Logi Helgu
![]()
![]()
![]()
Ekki má gleyma kirsuberjasósunni ;)