![]()
![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 1 umsögn(um).
Hugi sendi þessa uppskrift inn 2. desember 2006.
Rúgbrauð II
Innihald
- 4 bollar rúgmjöl
- 2 bollar heilhveiti
- 1 lítri súrmjólk
- 500g síróp
- 3 tsk. salt
- 3 tsk. matarsódi
Aðferð
- Blandið öllum innihaldsefnum saman.
- Hreinsið og smyrjið þrjár 1L mjólkurfernur að innan með smjöri. Skiptið deiginu jafnt í þær (á að fylla þær til ca. hálfs).
- Bakað í lokuðum fernunum í 9 tíma við 100°C.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Hugi
![]()
![]()
![]()
![]()
2. desember 2006
Þetta er æðislegt rúgbrauð. Af þessum tveimur uppskriftum sem ég hef sent inn finnst mér þessi betri - auðvitað meira vesen, þarf að baka í 9 tíma, en ó svo gott.