![]()
![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 3 umsögn(um).
Logi Helgu sendi þessa uppskrift inn 25. nóvember 2006.
Sætur kjúklingur
Fyrir þá sem samþykkja sætan mat er þetta sjúklega gott. Sósan er BBQ apríkósupúðursykur rjómi sem hægt er að bleyta upp í hverju sem er. Fínt að hafa bara hrísgrjón, hvítlauksbrauð og salat með (ekki verra að hafa jarðarber í salatinu ;)
Innihald
- 1dl BBQ sósa
- 1/2 dl Sojasósa
- 1dl rjómi
- 1dl púðursykur
- 1dl apríkósusulta eða apríkósumarmelaði
- kjúklingabringur (3-4)
Aðferð
- Öllu (nema bringunum) blandað saman og hitað upp.
- Bringurnar steiktar á pönnu.
- Allt sett í eldfast mót og eldað í hámark 30 mínútur á c.a. 200°C.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Atli Páll Hafsteinsson
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
6. nóvember 2008
Syndsamlega gott!
Helga Kristín Einarsdóttir ![]()
![]()
![]()
![]()
30. nóvember 2006
Þessi var mjög góður. Sjaldan hef ég sykrinum neitað. Mmmm.
Logi Helgu
![]()
![]()
![]()
![]()
![]()
25. nóvember 2006
Ógó góður