Hugi sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.
Súkkulaðibitakökur með heslihnetum
Þessi er ættuð frá Önnu. Einstaklega einfaldar og fljótlegar. Og GÓÐAR!
Innihald
- 1/2 bolli olía eða smjörlíki
- 1/2 bolli vanillusykur
- 1 bolli púðursykur
- 1/2 tsk matarsódi
- 2 egg
- 1 tsk vanilludropar
- 2 1/2 bollar hveiti
- 2 plötur suðusúkkulaði
- 1 1/2 bolli heslihnetuflögur
Aðferð
- Öllu blandað saman.
- Búið til sæmilega stórar kökur og raðið á bökunarplötu með smjörpappír. Hafið a.m.k. 5cm á milli kaka, þær stækka talsvert við baksturinn.
- Bakað á jöfnum undir og yfirhita við 165° í ca 30 mín.
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.