Anna Soffía sendi þessa uppskrift inn 4. mars 2010.
Súkkulaðikaka - Fljótleg og góð!
Innihald
- KAKAN
- 2.5 dl hveiti
- 2 dl sykur
- 1/2 tsk natron
- 1/2 tsk lyftiduft
- 1/2 tsk salt
- 2.5 msk kakó
- 1 egg
- 1.5 dl mjólk
- 3/4 dl matarolía
- 1 tsk vanilludropar
- KREMIÐ.
- 1 msk bráðið smjör
- 3 msk kakó
- 3 dl flórsykur
- 3 - 4 msk vatn (heitt)
- 1/2 tsk vanilludropar
Aðferð
- KAKAN:
- Öllu blandað saman í skál.
- Hrært með sleif.
- Sett í hringlaga tertuform (miðlungs stórt)
- Bakist í miðjum ofni við 180° í ca. 15 - 20 mín.
- KREMIÐ.
- Bræða smjörið og geyma
- Flórsykri og heitu vatni blandað saman
- kakó, vanilludropar og smjörinu blandað saman við
Mjög góð með þeyttum rjóma eða vanilluís:)
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.