![]()
![]()
![]()
stjörnugjöf byggð á 2 umsögn(um).
Hugi sendi þessa uppskrift inn 26. nóvember 2006.
Súpa með púrru og kartöflum (Vichyssoise)
Innihald
- 2 púrrur, saxaðar
- 1 laukur, saxaður
- 50g smjör
- 1 bolli þunnt sneiddar kartöflur
- 7dl kjúklingasoð
- Salt
- Grófmalaður svartur pipar
- Rjómi (valkvæmur)
Aðferð
- Steikið púrruna og laukinn í smjörinu þar til þau eru orðin mjúk (ekki brúna).
- Bætið kjúklingasoðinu og kartöflunum í pottinn, salt og pipar eftir smekk og sjóðið rólega í um 30 mínútur.
- Maukið súpuna í matvinnsluvél
Súpuna má bera fram kalda eða heita. Rjómanum er bætt í rétt áður en súpan er borin fram.
Umsagnir
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.
Inga Hanna Guðmundsdóttir ![]()
![]()
![]()
7. desember 2006
gleymdi..
setti reyndar grænmetissoð í stað kjúklinga vegna persónulegra dynta!
Inga Hanna Guðmundsdóttir ![]()
![]()
![]()
6. desember 2006
þessi súpa fékk að vera í kvöldmatinn - með örlitlum varíöntum. smjör breyttist í olíu og rjómi í fjörmjólk.
ég vissi ekki alveg á hverju ég ætti að eiga von miðað við innihaldið og var næstum hissa þegar hún reyndist mjög góð!
á örugglega eftir að elda hana aftur.
mæli með henni.