Hugi sendi þessa uppskrift inn 11. febrúar 2010.
Tertubotn
Þessi dugir í tvo svampbotna sem ættu að henta fullkomlega í hvaða rjómatertu sem er.
Innihald
- 150 g hveiti
- 175 g sykur
- 3 egg
- 1,5 tsk. lyftiduft
- 1 tsk. heitt vatn
Aðferð
- Egg og sykur þeytt þar til blandan er létt og ljós.
- Hveiti, lyftidufti og vatni blandað saman við.
- Skiptið deiginu jafnt í tvö form.
- Bakað í tveimur formum við 200 gráður í 15 mínútur.
Umsagnir
Vertu fyrst(ur) til að skrifa um þessa uppskrift og gefa henni einkunn.
Þú verður að skrá þig inn til að geta tjáð þig um uppskriftir.